Á árunum 2012-2018 komu út á fjórða tug verka eftir upprennandi ljóðskáld undir merkjum Meðgönguljóða og var serían í fararbroddi mikillar vakningar í íslenskum ljóðaheimi. Auk þess sem efnt var til fjölbreyttra viðburða á vegum útgáfunnar leiddi hún saman ólíkar kynslóðir, en mörg af þekktustu skáldum landsins komu að ritstjórn bókanna.
Nafn Meðgönguljóða var sótt í nýyrði yfir takeaway-kaffi og kápur bókanna voru lengi auðkenndar með brotna kaffihringnum sem bollinn skilur eftir sig. Þetta safn inniheldur valin ljóð úr öllum bókum flokksins auk pistla frá nokkrum ritstjórum.