Ragnar í Smára var goðsögn í lifanda lífi; kraftmikill sveitastrákur úr Flóanum sem gerðist iðnrekandi, bókaútgefandi, málverkasafnari og lífið og sálin í íslensku tónlistarlífi um áratugaskeið. Ragnar var margbrotinn persónuleiki sem átti í nánu sambandi við alla helstu listamenn þjóðarinnar og þær hræringar í menningu og pólítík sem skóku þjóð hans og veröldina alla á tuttugustu öld.
Lesandi þessarar bókar slæst í för með forleggjaranum sem er á leið á Nóbelshátíð í Stokkhólmi í desember- mánuði árið 1955. Meðal þeirra sem á vegi hans verða eru Jón Stefánsson listmálari, Jón Helgason prófessor, Sigurður Nordal sendiherra og Halldór Laxness rithöfundur en við sögu kemur einnig fjöldi annarra einstaklinga, þekktra og óþekktra, sem eiga líf sitt og auðnu með einhverjum hætti undir hinum listelska athafnamanni.
Jón Karl Helgason, sem hefur um árabil rannsakað líf Ragnars, byggir frásögn sína á einkabréfum hans og vina hans, samtölum við samferðamenn og fjölmörgum öðrum birtum og óbirtum heimildum. Jón Karl dregur upp stílfærða mynd af heillandi og breyskum eldhuga, vináttu og átökum, og mikilvægum kafla í íslenskri menningarsögu.