Einar er hæglátur arkitekt sem býr með pabba sínum í vesturbæ Reykjavíkur. Hann á kærustu í næstu götu, uppkominn son, sætar og sárar minningar úr bernsku; um mömmu sína og pabba, söngvana sem bundu þau saman og bölið sem sleit þau bönd, um allt það sem gerðist og hitt sem aldrei varð ... Guðmundur Andri Thorsson kann flestum höfundum betur að skapa með fáum dráttum andrúmsloft þar sem margar sögur krauma undir. Hér er á ferð ljúfsár saga um ástina í öllum myndum og það sem mestu máli skiptir í lífinu.