Fjallað er um flesta þætti íslenskra bókmennta frá miðri 20. öld og allt til aldarloka. Hér er sjónum beint að formbyltingu og módernisma í ljóðagerð. Þá er rækileg og tímabær umfjöllun um íslenska leikritun allt frá 1918 fram til aldamóta og sérstakur kafli um íslenskar barnabækur síðustu áratuga. Ítarleg grein er gerð fyrir ljóða- og sagnagerð á Íslandi eftir 1970 og reifaðar hinar ýmsu stefnur sem þá urðu áberandi. Loks segir frá því sem kalla má blómaskeið skáldsögunnar í aldarlok og öllum helstu höfundum sem þar koma við sögu gerð nokkur skil.